September 24, 2010

240910

Ég skammast mín hvað ég er búin að hunsa þetta blogg undanfarna daga! Bara leti í mér og mikið að gera í skólanum...

Það er alveg ótrúlega fyndið hvað óskalistinn minn virðist lengjast eftir því sem ég kaupi meira! Er ég eina með þetta vandamál? haha
Er að fara til Ítalíu eftir þrjár vikur, vona að eitthvað af þessu verði til í elsku H&M ;) Þá kannski styttist þessi listi eitthvað!!






Helgin mín verður afar slök! Afslöppun í kvöld, smá skemmtun á morgun og svo verð ég í kolaportinu á sunnudaginn að selja! Endilega kíkiði á okkur systurnar, við verðum með heilu fjöllin af fötum og allskonar flottheitum!:D

Vonast til að sjá ykkur þar!

-Hildur





September 21, 2010

PictureMe

 
Ég held að þetta sé rosalega áhugaverð mynd!

September 19, 2010

FOR SALE

 Er með nokkur skópör sem mig vantar að selja. Er að drukkna í fötum og skóm og nota meirihlutann af þessu mjög lítið eða aldrei!

Nike - notaðir tvisvar eða þrisvar. Stærð 38

Topshop ökklastígvél. Notuð nokkrum sinnum en í góðu standi. Stærð 38

Topshop. Notaðir tvisvar eða þrisvar. Stærð 38

Zara Limited Edition. Notaðir tvisvar. Stærð 38


 Úr Forever21. Aldrei notaðir. Stærð 38

Úr GS skóm. Notaðir nokkrum sinnum en í góðu lagi.


Ef þið hafið áhuga á einhverjum af þessum skóm þá getiði sent mér email á; hilssig@verslo.is og fengið nánari upplýsingar um verð og annað :)

-Hildur


September 17, 2010

170910

Ég er algjör naglalakka fíkill! Það er bara þannig... Smá úr safninu ;)


Er að leita að karrýgulu og burgundy naglalökkum, svona virkilega flottum! Hafiði séð svoleiðis einhversstaðar? :)

Annars er bara allt brjálað að gera, lærdómurinn hleðst upp og ég er að vinna alla helgina.. Sem betur fer er ég í bestu vinnunni og get lært á meðan ég vinn!

Ætla að vera duglegri að blogga á næstunni, promise :)

Svo er ég að fara til Rómar og Flórens eftir tæpan mánuð. Ég er rosa spennt en guð hvað ég hugsa til þess með hryllingi að þurfa að pakka! Þoli það ekki og búin að gera það of oft undanfarið fyrir minn smekk haha

Sooo pretty**

-Hildur

September 14, 2010

Photobucket 

Finnst þessi geðveikt flott. Frá Topshop 

Var að horfa á fyrsta þáttinn af Gossip Girl. Finnst eins og líf mitt sé aðeinst betra en það var í gær. Ég elska elska ELSKA Gossip Girl!!
 


You know you love me!
xoxo

September 13, 2010

Breytingar

Ég ætla að laga bloggið aðeins til. Kannski breyta líka nafninu. Það verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út :) Læt nokkrar inspiration myndir duga í bili. Kem svo með eitthvað geðveikt!


Jak&Jil, Columbine Smille, VanillaScented

-Hildur 

Follow my blog with bloglovin

September 10, 2010

dagdraumar

Mig langar í..

...Guðdómlega íbúð í París..

..Með kósí eldhúsi..
..Risastórri sturtu..
..Fullt af fallegum blómum..
..Með hvítum arni..
..Svona veggjum..
..Svona gólfi..
Stórri og bjartri borðstofu..
..Risastórum björtum gluggum, og þessum trylltu glæru stólum..   









Maður má nú láta sig dreyma ;)
..sérstaklega á svona leiðinlegum skóladegi!

-Hildur

September 9, 2010

...

Ég á svo mikið af skóm og fötum sem ég er hætt að nota en eru samt rosalega flott. Var að spá í að reyna að selja þau einhversstaðar. Það er allt uppbókað í koló þangað til seint í október. Nenni ekki að bíða svo lengi, þetta er svo fyrir mér! Kannski ég prófi að setja eitthvað af þessu hér inn? 

Annars langaði mér að sýna ykkur smá brotabrot af því sem ég keypti mér í NY. Reyndar bara einn hlut.


Er rosalega skotin í þessum hring (á baugfingri). Hann er úr Urban Outfitters..
Naglalakkið keypti ég líka úti. Það heitir Over the taupe og er frá OPI.

Þetta verður svona rosalega stutt í bili ;)

-Hildur

September 6, 2010

newyorknewyork

PhotobucketPhotobucket

Sorry hvað það tók mig langann tíma að skrifa þetta blogg. Er búin að vera að reyna að læra alla helgina, er komin svo mikið eftirá…

New York var ÆÐI. Við höfðum því miður bara þrjá og hálfan dag þannig að við gátum kannski ekki gert allt sem okkur langaði til en ég efast ekki um að ég eigi eftir að fara þangað mjög oft þannig að ég hef nú ekki áhyggjur af því ;)

Þar sem þetta var fyrsta skiptið okkar í NY gerðum við auðvitað alla túristahlutina – fórum efst upp í Empire State bygginguna, skoðuðum Rockafeller Center, New York Public Library, Ground Zero, Wall Street, Frelsisstyttuna, Battery park, Bryant park, Central park og ég gæti talið endalaust áfram..

Photobucket

 - Útsýni úr Empire State -

Photobucket

- New York Stock Exchange-

Það sem stóð uppúr hjá mér var SoHo sem ég fílaði mjög vel. Þar var allt morandi í rosalega töff týpum, fullt af módelum í go-see og allar flottustu búðirnar. Topshop, American Apparel, All Saints sem var bara flottasta búð sem ég hef farið inní, og þá er ég að meina búðin sjálf, ekki fötin (sem þó eru tryllt) og fullt fleiri.

Mér fannst líka rosalega skemmtilegt að rölta um Upper East Side. Gaman að sjá öll klikkað flottu húsin með dyravörðum og skvísur með Louis Vuitton og Chanel töslurnar, í Chanel drögtunum. Fannst það frekar kúl. Þar rákumst við líka á Gossip Girl tökuliðið, m.a. Ed Westwick, Leighton Meester og Blake Lively. Ég, mesti Gossip Girl fan EVER missti náttúrulega alveg kúlið! Haha

Photobucket


Í síðasta bloggi var ég beðin um að koma með nokkra must-do hluti í NY. Það er svona frekar erfitt þar sem þetta var mitt fyrsta skipti í borginni. En hér eru nokkrir hlutir sem ég mun pottþétt gera þegar ég fer aftur;

- Fá mér cupcakes í Magnolia bakery. Við tókum þær með okkur í Bryant park og borðuðum þær þar. Þær eru delicious!!

- Fara í Duane Reade eða Wallgreens (svona apóteka – snyrtivörubúðir). Þarna missti ég mig í snyrtivörum og hárvörum.    Merki eins og Bed Head, Bumble and Bumble, John Frieda, Neutrogena, Clean and Clear, St.Ives, OPI, Maybelline, Covergirl og endalaust meira (bara öll þessi helstu). Þessi búð er á hverju einasta götuhorni í NY, fer sko ekki framhjá manni. Allt MIKLU ódýrara en hérna heima. Í Wallgreens fæst líka íslenskt vatn fyrir svona fólk eins og mig sem þolir ekki útlenskt flöskuvatn!

- Fá mér Shaken Iced Tea Lemonade með Passion bragði á Starbucks, Namminamm svo gott. Og líka svo kalt í brjálaða hitanum þarna. Mig langar roosalega í þetta núna haha.

Ætla að setja inn fleiri myndir í kvöld, þær eru bara allar á annarri myndavél og ég þarf að smella þeim í tölvuna :)

-Hildur