January 13, 2011

Verslaðu í London

Vinkona mín hún Jóna er búsett í London og býður Íslendingum upp á þá þjónustu að versla föt í London í gegnum hana og senda heim til Íslands.

Fullt af geggjuðum búðum í London! Topshop, All Saints, River Island, H&M, Aldo, Office, Urban Outfitters og svo mætti lengi telja..

Tékk it out HÉR


-Hildur
(mynd: look-i-like)





January 10, 2011

ELIN KLING FOR H&M


Uppáhaldið mitt hún Elin Kling er í samstarfi við H&M og kemur línan hennar út 3. febrúar. Mikið er ég spennt! Hlakka til að sjá línuna í heild sinni.. Verst að hún verður bara til sölu í Svíþóð :( Splæsa í flug?




-Hluti af línunni-

-Hildur

myndir; Columbine Smille og afterDRK

January 8, 2011

08012011

Ég er sko aldeilis ekki búin að halda áramótaheitið mitt; að vera duglegur bloggari!!
Bara frekar mikið að gera. Búningar fyrir Nemó. Skólinn byrjaður aftur :( 

Er strax byrjuð að pæla í útskrift. Ég veit.. Rosalega langt í það. EEN aldrei of snemmt að fara að leita að kjól. Vil ekki lenda í vandræðum fimm mínútur í útskrift ;)

Fann þennan.

AQUA

Og gleðifréttir! Emmanuelle Alt mun taka við af Carine Rotfeld sem ritstjóri franska Vogue. Hún er bara snillingur og ein af mínum uppáhalds manneskjum í tískubransanum. Það rokkar enginn leður og Balmain eins og hún!



-Hildur


December 31, 2010

Gleðilegt ár!

Gleðilegt ár elsku vinir og vandamenn! takk allir fyrir að lesa og sérstakar þakkir til þeirra sem skilja eftir komment, you make my day, everytime :D



2010 er búið að vera einstaklega gott ár en 2011 verður svo MIKLU betra! get ekki beðið..
Skemmtið ykkur vel í kvöld og sjáumst og heyrumst á nýju ári! 
Eruði með einhver áramótaheit? Mitt er að vera duglegri að blogga :D

-Hildur


December 30, 2010

Mitt 2010

Árið mitt í máli og myndum!


Í byrjun febrúar hélt ég upp á Nemó með langbesta bekknum!

Fór til Frakklands í Mars..


.. og skoðaði París, Louvre, Eiffelturnin, Notre Dame, Versali og Chartres. Vorum á sama tíma og PFW og ég var svo heppin að fá að sjá eitt af mínum tískuiconum, Emmanuelle Alt, á leið á Kenzo sýninguna.

Fór til Kaupmannahafnar og Póllands í byrjun Apríl..


..verslaði, skemmti mér (mjög vel haha), Auschwitz, skoðaði saltnámurnar í Kraká, eyddi 15 tímum samfellt í rútu og skemmti mér enn meira!

Sumarið mitt var afar rólegt. Ég vann eins og vitleysingur, fór í réttir, ferðaðist aðeins um Ísland..
Ég, systkyni mín og pabbi héldum surprise afmælisveislu fyrir mömmu í Júlí. Besti dagur ársins án efa.


-Við systkynin-



Í lok Ágúst fór ég til New York ásamt yndislegu systur minni. Frábær ferð í alla staði og var gjörsamlega ástfangin af borginni! Við skoðuðum heilan helling, borðuðum Magnolia cupcakes í Bryant Park, fórum efst í Empire State, rákumst á upptökur á Gossip Girl, létum okkur dreyma á Upper East Side og nutum lífsins.

Í Október fór ég til Ítalíu..


.. þar skoðaði ég Róm, Vatíkanið, Flórens og Pisa. Skemmti mér endalaust mikið, villtist í miðnæturgöngu um Pisa með nokkrum snillingum, týndi símanum mínum :(, verslaði, skoðaði meðal annars Davíðsstyttuna, borðaði frábæran ítalskan mat og fékk versta mojito í heimi. Alger snilldarferð með frábærum krökkum!

Þetta ár er búið að vera alveg frábært en ég get bara ekki beðið eftir 2011. Síðasta önnin í Versló, útskrift, ÚTSKRIFTARFERÐ!, tvítugsafmælið mitt og hvað svo? Það er nú það..



December 26, 2010

261210


Jólin mín voru alveg dásamleg, þrátt fyrir að hafa verið ansi ólík því sem ég hef vanist. Ég fékk fullt af frábærum gjöfum, meðal annars þessa skó úr Monki, nýjan síma, hárblásara, dásamlega vettlinga og trefil, bók um uppáhalds listmálarann minn; Monet, krumma eftir Ingibjörgu Hönnu, hillur og fuuullt fleira!
Ég er líka búin að liggja í leti, borða yfir mig, fara í hundrað jólaboð, hitta stórfjölskyldurnar mínar og knúsa alla og kremja. Jólin eru svo dásamlegur tími!


Annars langar mig enn og aftur að heyra frá ykkur sem lesið. Hvað langar ykkur að sjá á þessu bloggi? Ég er svo hugmyndalaus þessa dagana. Kannski er það bara jólaletin í mér..

Sýni ykkur kannski fleiri gjafir við tækifæri ;)
-Hildur


December 23, 2010

Gleðileg jól!**

Hlakka til að eyða næstu dögum í..

  
..Sjónvarpsgláp..


..Í Uggunum mínum!..


..með heitt kakó við hönd..

..og smá dund og dekur..
Gleðileg jól allir :* Og takk fyrir að lesa!
-Hildur